Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson)
:
Virðulegi forseti. Varðandi þá tillögu sem er til umræðu vil ég segja að það gildir það sama um hana og aðrar tillögur sem fluttar eru til breytinga á þessu frv., ég tel ástæðulaust að samþykkja þær. Ég minni á að í athugasemdum með frv. er sagt að gert sé ráð fyrir að fella þennan skatt brott um leið og fjármagnstekjur verða skattlagðar. Ég hygg að það sé ástæðulaust að setja í vald mitt, að höfðu samráði við viðskrh., hvort og hvaða fyrirtækjum eigi að ívilna í sambandi við þennan skatt. Slík tillaga hefur ekki verið samþykkt áður og reyndar hafa komið fram tillögur æ og aftur varðandi þennan skatt til lækkunar, en núv. og fyrrv. ráðherrar, og þeir sem áður hafa gegnt því starfi, hafa allir lagst gegn slíkum tillögum og vona ég að þeir standi saman um slíka afstöðu nú.