Réttur til veiða í efnahagslögsögu Íslands

47. fundur
Þriðjudaginn 10. desember 1991, kl. 17:06:00 (1804)

     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
     Virðulegi forseti. Ég þarf ekki að lesa þær tilvitnanir upp aftur sem ég vitnaði til í ræðu hæstv. iðnrh. frá þessum haustdögum fyrir tveimur árum síðan. Hún stendur fyrir sínu. En ástæðan fyrir því að ég kem upp eru endurteknar aðfinnslur hæstv. iðnrh. yfir því að hér sé verið að tefja framgang þessa máls.
    Ég vil, virðulegi forseti, vekja athygli á því að þeir og þeir einir sem bera ábyrgð á því, ef einhver vill tala um tafir, eru hv. formaður þingflokks Alþfl. og hæstv. iðnrh. sem kusu að beina umræðunni á þetta svið.