Skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði

50. fundur
Fimmtudaginn 12. desember 1991, kl. 12:25:00 (1833)

     Kristín Ástgeirsdóttir :
     Virðulegi forseti. Ég viðurkenni fúslega að verslun á landsbyggðinni á undir högg að sækja og sama gildir um verslunina hér í miðborg Reykjavíkur. En þar sem ég tel að með þessari tillögu sé verið að færa óeðlilegt og óæskilegt vald í hendur ráðherra þá segi ég nei.