Virðulegi forseti. Hér er komið að því að afgreiða sem lög frá Alþingi fyrsta skattafrv. sem núv. hæstv. fjmrh., fjmrh. Sjálfstfl., leggur fram. Allir þingmenn Sjálfstfl. sem sitja í þessum sal lofuðu því í kosningabaráttunni að afnema þennan skatt við fyrsta tækifæri. ( Gripið fram í: Nei, nei, nei.) Það kemur í ljós að Egill Jónsson og Þorsteinn Pálsson eru einu mennirnir í salnum sem mótmæla því að hafa lofað því. (Gripið fram í.) Hv. þm. Árni Mathiesen þykist hafa lofað því í Hafnarfirði að skatturinn yrði áfram. Við könnumst ekki við það sem vorum í framboði með þingmanninum. Það er greinilegt að það er mikill óróleiki í hv. þm. Sjálfstfl. yfir þeirri stundu sem hér er að líða og það er skiljanlegt vegna þess að þetta er fyrsta atkvæðagreiðslan af mörgum á næstu dögum þar sem þeir munu greiða atkvæði gegn því sem þeir lofuðu í kosningunum. Mörg skattafrv. liggja hér á borðum þingmanna, flutt af ríkisstjórninni, skattar sem Sjálfstfl. lofaði að leggja af. Það er ekki hollt fyrir lýðræðið í landinu að flokkarnir hafi eina skoðun fyrir kosningar og aðra skoðun eftir kosningar. Þá eru kosningar marklausar.
Alþb. hefur stutt þennan skatt um langan tíma og styður hann enn. Við breytum
ekki afstöðu okkar þótt við séum nú í stjórnarandstöðu. Við fylgjum því í dag sem við sögðum í gær. Okkar afstaða er sjálfri sér samkvæm. Þótt hér sitji ríkisstjórn sem við treystum ekki og séum andvíg mörgu í hennar skattastefnu, þá hvikum við ekki frá því sem við höfum áður talið skynsamlegt. Þess vegna sýnum við samkvæmni í okkar afstöðu þótt Sjálfstfl. hafi hvorki manndóm né lýðræðisleg heilindi til að gera það. Ég segi já.