Guðrún Helgadóttir
(um þingsköp)
:
Hæstv. forseti. Ég hlýt að vera afar óskýr í framsetningu máls míns, en ég skal nú reyna að skýra það.
Það ber, lögum samkvæmt, að hefja 3. umr. fjárlaga eigi síðar en 15. des. og það er á sunnudaginn. Í dag er fimmtudagur. Við erum að ræða . . . (Gripið fram í.) Það virðist ekki vera að menn hafi gert sér ljóst að í dag er fimmtudagur, fimmtudagurinn 12. des. Hæstv. forseti talar um að það verði kannski hægt að hafa atkvæðagreiðslu til 3. umr. á morgun. Þá er kominn föstudagurinn 13. des. Svo mikið veit ég vegna starfa minna á Alþingi að starfslið þingsins þarf a.m.k. sólarhring til að vinna tæknivinnu svo að hægt sé að leggja fram frv. til 3. umr. þó að það viti hvað í því á að standa en þess utan veit það enginn. Og ég hlýt að spyrja: Til hvers eigum við hv. fjárlaganefndarmenn að koma saman í fyrramálið eftir umræðuna í dag? Hvers vegna má það ekki dragast fram yfir helgi vegna þess að þetta er útilokað og sér hver heilvita maður að þetta næst ekki. Ég er ekki að tala um hvernig unnið hefur verið að þessu eða ræða um pólitískan ágreining, heldur einfaldlega að benda á að þetta ekki hægt tæknilega séð. Satt best að segja er ekki mikil virðing sýnd hinu háa Alþingi með því að menn skuli enn þá tala um að þetta geti náðst. Hæstv. forseti, ég hlýt þá að spyrja: Hvernig á það að nást?