Ólafur Ragnar Grímsson
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Þeirri ósk var beint til forsetadæmisins áður en síðasta ræða hófst að forsetadæmið tryggði að þeir ráðherrar sem eiga eftir að svara spurningum hér, og þeir eru m.a. hæstv. forsrh., hæstv. sjútvrh., hæstv. félmrh. og hæstv. samgrh., svöruðu spurningum svo að umræðunni gæti lokið með eðlilegum hætti. Það hafa aðrir ráðherrar gert og reynslan af því hefur sýnt að það hefur verið fyllilega eðlilegt og greitt fyrir umræðunni. Það er hins vegar ekki líðandi að við þurfum að koma hér upp í ræðustólinn hvað eftir annað til þess að inna eftir því hvað líði ákvörðunum ráðherra um að veita hér svör. Forsetadæmið tók það að sér, virðulegi forseti, að ganga úr skugga um að þessir hæstv. ráðherrar, sem ég hef hér nefnt, bæðu um orðið. Það þýðir ekkert fyrir þann forseta sem hér situr að hrista hausinn vegna þess að forsetadæmið er nú sem betur fer fleiri en hann. Forsetadæmið tók þetta að sér og um það munu þingtíðindin bera vitni. Ég inni því virðulegan forseta eftir því hvert svarið er við þeirri beiðni sem hér var sett fram því ef áframhaldandi erfiðleikar verða á að fá hæstv. ráðherra til að svara þá getur vel komið til greina að við óskum eftir hléi til að fá nánari skýringar á því hvort ráðherrarnir ætla virkilega, þessir sem enn hafa ekki svarað, að koma fram við þingið með þessum hætti. Ég bið þá

að hugleiða það. Þeir ráðherrar sem hafa veitt svör hafa gert það skjótt og vel og greinilega og viðbrögð þingmanna hafa sýnt að það er með fullkomlega eðlilegum hætti.