Ólafur Ragnar Grímsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. forsrh. fyrir svörin. Þau skýrðu málin að nokkru leyti. Hins vegar er ljóst af lýsingu hæstv. forsrh. að á borðum ríkisstjórnarinnar liggja enn útgjaldatilefni upp á 3 milljarða kr. sem ríkisstjórnin ákvað að sýna ekki þegar fjárlög voru lögð fram. Þess vegna er ljóst að raunhæfni þessara fjárlaga er nú ekki eins traust eins og ráðherrar hafa viljað vera láta. Kemur það okkur í sjálfu sér ekki á óvart.
Hvað verður um þessa 3 milljarða sem ríkisstjórnin ákvað að geyma sér mun örugglega koma í ljós á fyrri hluta næsta árs. En betra hefði nú verið fyrir ríkisstjórnina að reyna að leysa dæmið allt.
Hvað snertir þessa sérstöku aðferð við niðurskurðinn vil ég biðja hæstv. forsrh. að skoða það mál nánar. Vegna þess að engin sérstök rök eru fyrir því að afhenda t.d. menntmrh. 290 millj. sem hann getur ráðstafað að eigin vild og eigin geðþótta í sínu ráðuneyti til þess að ná þessum 1.500 millj. kr. sparnaði. Þetta er óeðlileg aðferð og ég tel nauðsynlegt að ríkisstjórnin ræði þetta mál á næstu dögum, bæði sín á milli og við ýmsa embættismenn, til þess að glöggva sig betur á þessu atriði. Mér þykir leitt að hæstv. forsrh. treystir sér ekki til þess að lýsa því yfir að markmið ríkisstjórnarinnar sé hið sama og okkar í desember 1990. Að ná samkomulagi við sveitarfélögin um það hvernig sameiginleg málefni yrðu afgreidd í fjárlagafrv. Þá náðist samkomulag. Og það hefði verið æskilegt að hæstv. forsrh. hefði getað staðfest að það væri markmið ríkisstjórnarinnar.