Geir H. Haarde
:
Virðulegi forseti. Mér er ljúft að upplýsa eftirfarandi í sambandi við þetta mál og staðfesta það sem forseti segir að það var að ósk okkar þingflokksformanna stjórnarflokkanna sem um það var beðið seint í nótt að þessari atkvæðagreiðslu yrði frestað fram eftir degi. Síðan varð það að samkomulagi eftir samtöl milli þingflokksformanna að fundinum sjálfum yrði þá frestað til kl. 1. Mér er það að sjálfsögðu ljóst að þetta kann að valda einhverjum þingmönnum óþægindum, en það er ástæðulaust að fara neitt í felur með það að þetta er að frumkvæði og að ósk okkar þingflokksformanna stjórnarflokkanna. Ég sé

ástæðu til þess að þakka þeim sem tóku þátt í samtölum um þetta við okkur í nótt fyrir þær undirtektir sem þessi ósk fékk frá þeim þannig að við máttum standa í þeirri trú að um þetta væri þokkalegt samkomulag þó svo maður skilji það að sjálfsögðu að ekki séu allir jafnánægðir með það.