Svavar Gestsson
:
Virðulegi forseti. Það er kannski rétt að rifja það upp að gefnu tilefni að í gærkvöld fóru fram býsna langdregnar samningaviðræður um ýmis mál eins og gengur. Í sjálfu sér er ekkert merkilegt við það að öðru leyti en því að við lögðum á það áherslu, fulltrúar stjórnarandstöðuflokkanna, að atkvæðagreiðsla eftir 2. umr. fjárlaga færi ekki fram fyrr en síðdegis í dag. Stjórnarflokkarnir töldu aftur á móti óhjákvæmilegt að hún færi fram kl. 11. Síðan af einhverjum ástæðum snerist stjórnarflokkunum hugur og þeir óskuðu eftir því að atkvæðagreiðslunni yrði frestað frá kl. 11. Við óskuðum þá eftir því eða ég fyrir mitt leyti að fundinum yrði þá jafnframt frestað þannig að ekki yrðu hér fundahöld fyrr en eftir hádegið fyrst menn treystu sér ekki í atkvæðagreiðslu og tíminn fyrir atkvæðagreiðsluna yrði svo ákveðinn síðar. Hér er því bersýnilega um að ræða, eins og fram kom í máli hv. 8. þm. Reykv., ósk stjórnarflokkanna sem er ástæðan til þess að atkvæðagreiðslunni er frestað. Hins vegar verða menn að skilja það, og þar á meðal formenn þingflokka stjórnarflokkanna, að það var auðvitað ekkert ráðrúm til þess eftir kl. 5 í morgun að hafa samráð við alla þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna um þennan veruleika sem nú blasir við. En niðurstaðan er sem sagt þessi og ég tel eftir atvikum að það sé lítið annað fyrir stjórnarandstöðuna að gera en að fallast á þá ósk stjórnarflokkanna að atkvæðagreiðslu um fjárlögin verði frestað.