Ólafur Ragnar Grímsson
(um atkvæðagreiðslu)
:
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. forsrh. fyrir að hafa lesið þetta aftur og hægar og gat ég nú numið textann. Hann var hins vegar nokkuð sérkennilegur. Ber að skilja þetta svo, hæstv. forsrh., að ríkisstjórnin ætli ekki að láta koma hér til atkvæða þær greinar frv. sem snúa að framhaldsskólum og grunnskólum? Ætli ekki að láta koma til atkvæða þær greinar sem snúa að hagræðingu sjúkrahúsa á höfuðborgarsvæðinu? Ég held að það sé nokkuð ljóst fyrir okkur þingmenn hvaða greinar þetta eru. Síðan nefndi hæstv. forsrh. að í þriðja lagi mundi ekki koma til raunverulegra atkvæða hvað efnisafstöðu snertir þær greinar sem snerta fjármálasamskipti ríkis og sveitarfélaga. Mér er ekki alveg ljóst hvaða greinar það eru. Ég tek hins vegar eftir því að þessi þrenning sem hér var lesin í hinum skrifaða texta forsrh. er hin pólitíska vandræðaþrenning Alþfl. Er það kannski þannig að skýringin fyrir heimastílnum sem hæstv. forsrh. fór með hér sé sú að enn þá sé allt logandi í deilum í stjórnarflokkunum um þetta þrennt, framhaldsskóla, grunnskóla, sjúkrahús á höfuðborgarsvæðinu, þar með talinn St. Jósefsspítala, og fjármálasamskipti ríkis og sveitarfélaga? Er hin raunverulega pólitíska skýring á þeim texta sem forsrh. fór með, skrifuðum texta sem greinilega var einhvers konar samkomulagstexti, að það sé slíkur ágreiningur í stjórnarliðinu þrátt fyrir það að atkvæðagreiðslunni hafi verið frestað að ríkisstjórnin treysti sér ekki enn til þess að láta raunverulega atkvæðagreiðslu um fjárlögin við 2. umr. fara fram? Það er auðvitað nauðsynlegt fyrir okkur að vita það vegna þess að hér eru brtt. frá þingmönnum, m.a. um framhaldsskólann, sem liggja fyrir til atkvæða og þingmennirnir flytja þær tillögur í mikilli alvöru. Við þurfum því að fá að vita hvað þetta merkir í reynd sem forsrh. var að fara hér með.
Mér þætti vænt um ef einhver forustumaður Alþfl. vildi skýra það hvað þetta þýðir frá sjónarhóli Alþfl.