Fjárlög 1992

51. fundur
Föstudaginn 13. desember 1991, kl. 14:59:09 (1967)

     Rannveig Guðmundsdóttir (um atkvæðagreiðslu) :
     Virðulegi forseti. Ég vísa til yfirlýsingar formanns fjárln. í framsögu við 2. umr. fjárlaga og til staðfestingar forsrh. við upphaf atkvæðagreiðslu hér í dag. Hjá þeim kom fram af hálfu ríkisstjórnar og stjórnarflokka að fjármál framhaldsskóla og háskóla koma ekki til endanlegrar afgreiðslu nú við 2. umr. Þær tillögur bíða frekari umfjöllunar stjórnarflokkanna og koma til lokaafgreiðslu við 3. umr. Því munum við nokkrir þingmenn Alþfl. sitja hjá við afgreiðslu á fram komnum brtt. um skólagjöld við þessa atkvæðagreiðslu.
    Við áskiljum okkur hins vegar allan rétt til að flytja og fylgja brtt. við liði sem varða skólagjöld við lokaafgreiðslu málsins við 3. umr.