Fjárlög 1992

51. fundur
Föstudaginn 13. desember 1991, kl. 15:26:00 (1975)

     Svavar Gestsson (um atkvæðagreiðslu) :
     Virðulegi forseti. Hv. 5. þm. Norðurl. e. spurði að því hvort þær hefðir hefðu skapast hér á þinginu að menn héldu ræður um efni máls um leið og þeir gerðu grein fyrir atkvæði sínu. Ég vil ráðleggja hv. 5. þm. Norðurl. e. að snúa sér til hv. 2. þm. Norðurl. e., núv. hæstv. landbrh. og samgrh., til að kynna sér hvaða hefðir hafa skapast í nafnaköllum hér í þessari virðulegu stofnun.