Ólafur Ragnar Grímsson (um atkvæðagreiðslu) :
Virðulegi forseti. Ég vil bjóða hv. þm. Matthías Bjarnason velkominn í okkar hóp sem viljum gjarnan fá að vita svörin áður en gengið er til efnislegrar atkvæðagreiðslu. En það er einmitt það sem gerðist hér í dag að hæstv. forsrh. lýsti því yfir í upphafi atkvæðagreiðslunnar að ríkisstjórnin væri ekki tilbúin með svörin og það er þess vegna sem við m.a., þingmenn stjórnarandstöðunnar, höfum setið hjá við atkvæðagreiðslu um þorrann af þeim liðum sem hér er verið að bera upp. Ég skil þess vegna mætavel afstöðu hv. þm. Matthíasar Bjarnasonar, að hann vilji gjarnan fá að vita hver áformin eru og hver niðurstaða ríkisstjórnarinnar er, ríkisstjórnar sem er svo sundurþykk að hún kemst ekki nema haltrandi hér í gegnum atkvæðagreiðsluna vegna innri ágreinings. Hins vegar verður að greiða atkvæði um þennan lið formsins vegna ef einhver hv. þm. óskar eftir því. Það er ekkert annað að gera í því. Ég vil því styðja þá ósk að atkvæðagreiðsla um liðinn fari fram. Það er sjálfsögð kurteisi við þá sem þess óska, en skil hins vegar mætavel afstöðu hv. þm. Matthíasar Bjarnasonar, að honum sé nú ofboðið hvernig ríkisstjórnin heldur á málum hér í þinginu.