Fjárlög 1992

51. fundur
Föstudaginn 13. desember 1991, kl. 15:47:00 (1990)

     Kristín Ástgeirsdóttir :
     Virðulegi forseti. Á fjárlögum ársins 1992 er gert ráð fyrir því að Lánasjóður ísl. námsmanna fái 2 milljarða og 220 þús. kr. Það má öllum ljóst vera að sú upphæð dugar hvergi nærri fyrir þörfum sjóðsins og honum er vísað út á lánamarkaðinn enn eitt árið. Þar við bætist að boðað hefur verið nýtt frv. um sjóðinn og á þessari stundu má segja að margt sé óljóst um framtíð hans. Því greiði ég ekki atkvæði á þessari stundu.