Gunnlaugur Stefánsson
:
Virðulegi forseti. Í tilefni ummæla hv. þm. Egils Jónssonar um að sá einstæði atburður hefði gerst að ekki hefði náðst samstaða í þingmannahópi Austurlands um skiptingu á þessum lið, ( EgJ: Ég sagði þetta ekki.) þá vil ég taka það fram að eftir það lágu fyrir skýrar upplýsingar um að ef þessir liðir yrðu flattir út til þess að safna saman í 5 millj. kr. fjárveitingu til að byggja hjúkrunarheimilið á Höfn, sem er mikil þörf og mikil nauðsyn á, þá væru verk á Seyðisfirði, á Djúpavogi og á Eskifirði í slíku uppnámi að þar væri ekki um fulla framkvæmdaráfanga að ræða. Þá væri óvissa um að í nokkrar framkvæmdir yrði farið á næsta ári og jafnvel ekki að sjúkrahúsið á Seyðisfirði yrði opnað eftir alllangan byggingartíma, nema þá til þess ráðs yrði gripið að leggja það sem upp á vantar, þessar 5 millj. á sveitarfélögin á Austurlandi. Ég sé ekki að það sé á bætandi miðað við þær aðstæður sem ríkja hér víða.
Mér þykir slæmt að ekki skuli nást samstaða um þetta mál --- vegna þess að það er þörf á samstöðu --- með hv. þm. Agli Jónssyni og öðrum þingmönnum kjördæmisins. Ég stóð að þessari tillögu meiri hluta fjárln. og ég mun gera það hér líka af því að ég tel að það sé best fyrir Austurlandskjördæmi.