Fjárlög 1992

51. fundur
Föstudaginn 13. desember 1991, kl. 16:54:00 (2018)

     Jón Kristjánsson (um atkvæðagreiðslu) :
     Virðulegi forseti. Það hefur farið fram hjá virðulegum forseta, en ég bað um sératkvæðagreiðslu um lið 98 sem er Hafnamál og hafnamannvirki. Ég vil því fara fram á það að þessi atkvæðagreiðsla verði endurtekin. Undirnefnd vann þessi hafnamál og var samkomulag um afgreiðslu þeirra og þess vegna hef ég hug á því að fá atkvæðagreiðslu um þau sérstaklega og einnig um lið 100, Sjóvarnargarðar. Ég fer því fram á það að atkvæðagreiðslan verði endurtekin ef það er mögulegt.