Fráveitumál sveitarfélaga

52. fundur
Laugardaginn 14. desember 1991, kl. 12:13:00 (2060)

     Flm. (Sigurður Hlöðvesson) :
     Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þá umfjöllun sem þáltill. mín hefur hlotið hér á Alþingi og ég tek undir orð hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar áðan, að það er full ástæða til að skoða saman þessa þáltill. og þáltill. sem hv. þm. Gísli S. Einarsson flutti hér fyrr á fundinum. Þetta eru náskyld mál og má kannski segja að þessar tillögur hefðu átt að fara saman í einni. Ég lýsi yfir miklum stuðningi við það að þessar tvær þáltill. séu skoðaðar saman og úr þeim jafnvel gerð í umhvn. ein þáltill. sem lögð verði fyrir Alþingi.