Ólafur Ragnar Grímsson
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Þegar ég var fjmrh. taldi ég það vera grundvallarreglu að fjmrh. hefði hvorki vald til né væri eðlilegt að hann væri að kynna sér skattframtöl einstakra borgara í þessu landi. Ég sagði það hvað eftir annað við ýmsa sem til mín komu að ég teldi hvorki vera siðferðilega né stjórnarfarslega rétt að fjmrh. væri að hnýsast í skattframtöl einstakra borgara og skipti þá engu máli hvaða stöðu þeir gegndu í landinu.
Nú hefur hæstv. fjmrh. endurtekið hér í ræðustól á Alþingi yfirlýsingu, sem ég heyrði hann flytja utan þings, satt að segja afar sérkennilega yfirlýsingu, þar sem hann fullyrti að enginn ráðherra í síðustu ríkisstjórn hefði borgað skatt af sínum bifreiðum. Nú ætla ég í sjálfu sér ekki að ræða það efnislega hér, en af þessu tilefni vil ég leggja spurningu fyrir hæstv. fjmrh.: Er það virkilega þannig að hæstv. fjmrh. hefur farið og kynnt sér skattframtöl þessara einstaklinga? Þá vil ég spyrja hann með hvaða rétti hann hafi gert það, á grundvelli hvaða lagagreinar og í krafti hvaða starfsvenju. Ég er ekki að nefna þetta ekki vegna þess að mér finnist það vera eitthvert feimnismál hvort ráðherrar borgi skatta af sínum bílahlunnindum, það er sjálfsagt að ræða það og tel ég það eðlilegt. Hitt er mjög alvarlegt ef fjmrh. íslenska ríkisins fer að gera það að málflutningsefni hvort einstakir ríkisborgarar greiða skatta með tilteknum hætti eða ekki þannig að hann hafi kynnt sér skattaframtöl þeirra.
Ég get sagt það hér að ég er ekkert viss um að þessi fullyrðng hæstv. fjmrh. sé rétt. ( Forseti: Nú vill forseti beina því til hv. þm. að tala um gæslu þingskapa.) Já, ég ætlaði einmitt að koma að því, hæstv. forseti, því að mér finnst mjög óeðlilegt að undir liðnum andsvar hér á Alþingi fari hæstv. fjmrh. upp í ræðustólinn og gefi yfirlýsingu af þessu tagi. Þetta er að mínum dómi svo alvarlegt fordæmi að fjmrh. sé að gefa yfirlýsingar um skatta einstaklinga að það er hvorki hægt að gera það undir þessum lið, andsvar --- þannig að enginn annar getur þá kvatt sér hljóðs en sá sem talaði áður --- né heldur finnst mér þetta vera eðlilegt skref. Ég tek það skýrt fram að ég er ekki að segja þetta vegna bílamála ráðherra heldur bara gagnvart því fordæmi að pólitískur aðili telji sig geta verið að vasast í skattframtölum hinna og þessara borgara í landinu. Í Bandaríkjunum hefur þetta tíðkast, Nixon gerði þetta til dæmis, að siga skattyfirvöldunum á framtöl einstaklinga, pólitískra óvina sinna, og það var gagnrýnt mjög harkalega í því landi.
Ég vil þess vegna mælast til þess að fyrst hæstv. fjmrh. hefur gefið þessa yfirlýsingu hér þá verði hún rædd sérstaklega, ekki það sem snýr að bílamálum ráðherra, heldur sú braut sem hér er farið inn á. Nema hæstv. fjmrh. sé reiðubúinn að lýsa því yfir að það hafi verið mistök af hans hálfu að gera þetta með þessum hætti.