Skattskylda innlánsstofnana

53. fundur
Þriðjudaginn 17. desember 1991, kl. 02:12:00 (2168)

     Halldór Ásgrímsson (um þingsköp) :
     Virðulegur forseti. Ég hef haldið allítarlega ræðu um það mál sem hér er til umræðu. Mér finnst mjög mikilvægt að hæstv. fjmrh. svari því, áður en umræðan heldur lengra áfram, eða aðrir ráðherrar í ríkisstjórninni, hvort það standi til að gera einhverjar breytingar á þessu frv. Það eru svo augljósir gallar á því að það getur vart verið að ríkisstjórninni sé alvara að málið fari til nefndar án þess að nokkuð sé sagt um það hvort taka skuli tillit til þess sem hefur komið fram í umræðunni. Ég hvet a.m.k. hæstv. fjmrh. til að upplýsa okkur eitthvað um það áður en umræðan heldur áfram.