Eftirlaun til aldraðra

54. fundur
Þriðjudaginn 17. desember 1991, kl. 18:38:01 (2214)

     Frsm. heilbr.- og trn. (Sigbjörn Gunnarsson) :
     Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti heilbr.- og trn. um frv. til laga um breyting á lögum um eftirlaun til aldraðra.
    Nefndin hefur fjallað um frv. og fékk á sinn fund til viðræðna um það Hallgrím Snorrason hagstofustjóra, Þorgeir Eyjólfsson frá Landssambandi lífeyrissjóða, Árna Guðmundsson frá Lífeyrissjóði sjómanna og Hrafn Magnússon frá Sambandi almennra lífeyrissjóða. Þess skal getið að haft var samband við forráðamenn lífeyrissjóða Dagsbrúnar og Framsóknar. Þeir bentu á Hrafn Magnússon sem sinn talsmann.
    Nefndin mælir með samþykkt frv. með breytingu sem flutt er tillaga um á þskj. 271. Tildrög breytingarinnar eru að Samband almennra lífeyrissjóða hefur samþykkt að breyta í reglugerð sinni ákvæðum um stigagrundvöll lífeyrisréttinda frá og með 1. janúar 1992 á þann hátt að í stað þess að miða stigagrundvöll við grundvallarlaun, sem breytast með kaupgjaldsbreytingum, verða lífeyrisréttindi miðað við ,,grundvallarfjárhæð`` sem breytist með lánskjaravísitölu. Þessi breyting verður tekin upp hjá langflestum lífeyrissjóðum innan Sambands almennra lífeyrissjóða auk þess sem nokkrir aðrir lífeyrissjóðir hafa gert svipaðar breytingar á stigagrundvelli lífeyrisréttinda. Með tilliti til þess að þessir lífeyrissjóðir annast greiðslur á lífeyri þeirra sem njóta lífeyris samkvæmt lögum um eftirlaun aldraðra þykir rétt að breyta stigagrundvellinum í lögum um eftirlaun aldraðra til samræmis við ákvörðun Sambands almennra lífeyrissjóða. Ef ekki kæmi til slík breyting væri verið að beita tvenns konar reiknireglum við útreikning á lífeyri og gæti slíkt valdið misskilningi.
    Undir þetta rita Sigbjörn Gunnarsson, Lára Margrét Ragnarsdóttir, Finnur Ingólfsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Ingibjörg Pálmadóttir, Sigríður Anna Þórðardóttir, Svavar Gestsson, Sólveig Pétursdóttir og Guðmundur Hallvarðsson.