Ólafur Ragnar Grímsson
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Þegar Alþingi tók þá ákvörðun að leggja niður deildir og starfa í einni málstofu þá var það kjarni þeirra breytinga að störf nefnda Alþingis yrðu efnismeiri og markvissari. Sjálfsagt höfum við öll haft þann vilja að rækja okkar störf vel, en mér sýnist á síðasta sólarhring og hér í kvöld að núv. hæstv. ríkisstjórn stefni í skrípaleik, skrípaleik þar sem nefndarstörf eru fullkomlega marklaus og út í hött. (Gripið fram í.) Til málamynda kemur meiri hlutinn í efh.- og viðskn. saman örskotsstund um kvöldmatarhlé til að meta tekjuhlið fjárlaga og þykist hafa lokið verkinu við aðstæður þar sem okkur berast fréttir frá opinberum stofnunum sem sýna það að slíkt hlýtur að vera mikið vandaverk. Ég vil bara nefna örfáar staðreyndir sem hafa verið að koma í ljós síðustu 24 klukkustundir þessu til staðfestingar.
Í kvöldfréttum nú var verið að greina frá því að innflutningurinn í nóvembermánuði hefði hrapað. Engu að síður er í síðustu útgáfu af tekjuáætlun fjárlaga næsta árs reiknað með meiri tekjum af innflutningi heldur en gert var þegar fjárlagafrv. var lagt fram. Ætlar meiri hluti efh.- og viðskn. virkilega að standa að mati á tekjuhlið fjárlagafrv. þegar við höfum í höndum tölur sem sýna hrap á innflutningi en forsendur frv. nú gera ráð fyrir auknum tekjum af innflutningi á næsta ári?
Við fengum í gær fréttir af því að næsta ár verði mesta samdráttarár í íslensku hagkerfi í eina fjóra áratugi. Engu að síður er í endurskoðuðum tekjuforsendum fyrir fjárlagafrv. næsta ár reiknað með hærri tekjum af tekjuskatti einstaklinga en þegar frv. var lagt fram. Ég vil spyrja: Stafar það af því að ríkisstjórn Sjálfstfl. og Alþfl. sé að stórauka skattbyrðina í tekjuskatti? Svarið við því hjá fjmrh. er nei. Ríkisstjórnin er ekki að auka skattbyrðina í tekjuskatti. Hvernig fer þá efh.- og viðskn. að því að fá það út þegar Þjóðhagsstofnun segir: Hér er að verða mesta samdráttarár í fjóra áratugi og forsrh. var í sjónvarpinu í kvöld og líkti ástandinu næsta ár við hið fræga hrun 1967--1968? En meiri hluti efh.- og viðskn. virðist engu að síður enga athugasemd ætla að gera við þessa tekjuáætlun frv. Er það virkilega ætlun hv. þm. Rannveigar Guðmundsdóttur að vera í forsæti fyrir einhverjum skrípaleik, þar sem menn taka hvorki landslög né sjálfa sig alvarlega heldur eru bara að skrifa upp á einhverja pappíra sem augljóslega eru settir saman út í bæ? Augljóslega eru ekki settir saman af þingmönnum sjálfum, augljóslega eru ekki unnir hér innan þingsins heldur einhvers staðar annars staðar. Var það ætlunin, virðulegur forseti, með þessari breytingu íslenska þingræðisins í eina málstofu að breyta nefndarstörfunum í skrípaleik þar sem ekkert efnislegt innihald væri fyrir hendi? Efh.- og viðskn. þingsins, fjh.- og viðskn. fyrri ára, hefur ekki í nokkra áratugi staðið fyrir jafnvandasömu verki eins og að meta tekjuhlið fjárlagafrv. nú. Og þá er því lokið í kvöldmatnum án nokkurrar athugunar. Ég skil vel að hæstv. fjmrh. hlægi vegna þess að hann þolir nú manna síst að þessi tekjuhlið frv. sé skoðuð. En við mótmælum því að nefndastörf þingsins, sem ætlað var að fá raunverulegt innihald með breytingu á stjórnarskrá lýðveldisins þannig að þingið yrði ein málstofa, snúist yfir í þennan skrípaleik sem greinilega er í uppsiglingu.
Ég tel þess vegna, virðulegi forseti, að það sé út í hött að gera hér tveggja tíma hlé á kvöldfundi til þess að minni hluti efh.- og viðskn. geti lokið störfum sínum. Þetta er eitt mikilvægasta verkið sem hér þarf að vinna á þessum sókarhringum, að meta þessa tekjuhlið, og það verður nú að gefast fyrir nefndarfólkið a.m.k. birta af degi til að geta lokið þeim störfum.