Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal)
(andsvar)
:
Herra forseti. Það er nauðsynlegt að það komi fram að milli íslenska landbrn. og hins norska hefur verið mjög náin samvinna í sambandi við undirbúning GATT-viðræðna og í höfuðdráttum er stefna beggja þessara landa hin sama. Því var lýst yfir fyrir tveim dögum eða þrem af fulltrúa Finna að Norðurlönd stæðu efnislega að því tilboði eða tillögu sem Kanadamenn hafa gert enda rúmast það innan þeirrar stefnu sem ríkisstjórn Íslands hefur markað.