Ólafur Ragnar Grímsson
(andsvar)
:
Virðulegur forseti. Orð formanns fjárln. hafa venjulega haft sérstakt gildi hér á Alþingi, sérstaklega þegar hann er í ræðu að mæla fyrir áliti nefndarinnar. Í öðru lagi vil ég nefna það, eins og ég sagði hér áðan, að jafnvel þótt ríkislögmaður hafi látið einhverja skoðun í ljós, þá er það ekki úrskurður dómsaðila. Þess vegna er mjög hæpið að einstakur þingmaður, sem gegnir ábyrgðarstöðu af því tagi sem hv. þm. Karl Steinar Guðnason gerir, sé að lýsa því sem persónulegri skoðun sinni, jafnvel þótt hann hafi þá persónulegu skoðun að hér sé um lögbrot að ræða. Í þriðja lagi nefndi hann lausafjármuni og ekki væru fordæmi fyrir því. Það sem hann á sjálfsagt við eru búrin í húsunum og annað sem tilheyrir umönnun dýranna. Í þeim tilvikum sem hér voru rakin frá fyrri árum þegar keypt voru fjós og fjárhús voru auðvitað keyptir básarnir og keðjurnar og annað sem tilheyrði skepnunum og annað sem tilheyrði því að hirða um kindurnar í fjárhúsunum, það voru ekki bara veggirnir og gólfin og þakið sem voru keypt þannig að það var með nákvæmlega sama hætti keypt það sem tilheyrði umönnun dýranna. Enginn munur er á því. Þingmaðurinn getur kallað básana í fjósunum og grindurnar í fjárhúsunum lausafjármuni ef hann vill eins og búrin eru hjá loðdýrabændum. En það er jafnríkur þáttur í skepnuhaldinu og starfsemi húsnæðisins eins og þessi ræðustóll er hluti af húsmunum Alþingis.