Ólafur Ragnar Grímsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Í haust var sagt: Kjarajöfnunaraðgerðirnar verða í fjárlagafrv. þegar það verður afgreitt á Alþingi í desember. Nú er sagt: Kjarajöfnunaraðgerðirnar verða í tengslum við kjarasamninga. Eru einhverjir peningar ætlaðir í þessu fjárlagafrv. í slíkt, hæstv. félmrh.? Svarið er nei. Það er ekki króna ætluð í þessu fjárlagafrv. til þess.
Jú, það er rétt, hæstv. félmrh. svaraði mér einu sinni áður og þá var svarið að vegna þess að samningar hefðu brugðist um álver, vegna þess að Jón Sigurðsson hefði ekki getað efnt pappírsfyrirheitin sem hann gaf í Reykjanesi og í kosningunum . . . ( Félmrh.: Þetta er nú útúrsnúningur.) Það er enginn útúrsnúningur vegna þess að það eina sem var á borðinu um álver voru pappírsloforðin sem við hinir bentum á að væru ærið hæpin. Og nú kemur hæstv. félmrh. og endurtekur það að vegna þess að pappírsloforðin um álverið stóðust ekki þá verði launafólkið í landinu að sætta sig við að fá ekki lífskjarajöfnun, þá verði barnafólkið innan BSRB að sætta sig við að kjör þess verði skert um 4.000 kr. á mánuði.
Síðan sagði hæstv. félmrh.: Það eru erfiðleikar. Það er alveg rétt, hæstv. félmrh., það hefur enginn neitað að taka þátt í lausn þeirra. En, hæstv. félmrh., lausnin er þannig að hátekjufólkið sem er með 400--500 þús. kr. á mánuði og á engin börn, það er ekki skert um krónu í þessu frv. Ekki um krónu. ( Félmrh.: Hvað með 500 millj. sem hv. þm. ætlaði að skera af þegar hann var fjmrh.?) Ég skal alveg ræða það, hæstv. félmrh., ég hef bara ekki tíma til þess í andsvari, ég bara sé það að hæstv. félmrh. þolir ekki að sitja undir þeirri staðreynd að hátekjufólkið með 500--600 þús. kr. á mánuði er ekki skert um krónu í þessu frv., en launafólkið innan BSRB . . . ( Félmrh.: Það er rangt.) Það er ekki rangt, það er staðreynd, hæstv. félmrh., það er ekki skert um krónu og þú getur bara flett frv. og sýnt okkur ákvæðið ef þú heldur því fram að það sé gert, en launafólkið innan BSRB, það er skert með 4.000 kr. á mánuði --- á mánuði, hæstv. félmrh., ef það á þrjú börn. Þetta eru staðreyndir málsins. Þetta eru staðreyndirnar sem varaformaður Alþfl. verður að horfast í augu við. Þetta er dómurinn um herleiðinguna sem hæstv. félmrh. er kominn í.