Ólafur Ragnar Grímsson
(andsvar)
:
Virðulegur forseti. Það er siður í löndum sem sum eru ekki lengur til að koma þannig fram við þjóðþingin að þeim eru bara sýnd einhverjir pappírar en bannað síðan að segja nokkrum öðrum frá heldur farið með þá af slíkri leynd að ekki megi þeir neins staðar vera til í vörslu þjóðþingsins. Ég er ekki reiðubúinn að sætta mig við slíkt. Þess vegna ætla ég að segja hæstv. utanrrh. það að ég mun í utanrmn. fara formlega fram á að þessi bréf verði lögð fram í utanrmn. með sama hætti og önnur skjöl eru þar lögð fram og skilin eftir í vörslu utanríkisnefndarmanna. Það verður fróðlegt að sjá hvort utanrrn. muni neita því. Ég mun síðan taka það upp í nefndinni þegar ég hef séð þessi bréf hvort ég tel þetta vera slíka leyndardóma að ekki megi birta. Um það geta síðan orðið fróðlegar og athyglisverðar umræður í utanrmn. í ljósi samanburðar við ýmis önnur skjöl sem þangað berast og leyft er að birta.
Það er ánægjulegt og mikið persónulegt koplíment fyrir mig að hæstv. utanrrh. skuli nú telja málflutningi sínum best borgið á alþjóðlegum vettvangi með því að taka upp þau rök og þann efnivið sem ég skildi eftir í fjmrn. og væri óskandi að hann temdi sér það á fleiri sviðum.