Ólafur Ragnar Grímsson
:
Virðulegi forseti. Það eru nákvæmlega sömu efnisrök fyrir að jöfnunargjaldið sé í gildi til áramóta á nýju ári eins og eru fyrir þeirri brtt. hæstv. fjmrh. að jöfnunargjaldið sé ekki aðeins fram á mitt ár eins og er í upphaflega frv. heldur sé ævitími þess framlengdur um þrjá mánuði.
Ég vil vekja athygli hv. alþingismanna á því að sú viðbótarupphæð sem fæst með því að hafa jöfnunargjaldið þremur mánuðum lengur en hæstv. fjmrh. hefur lagt til með brtt. sem greidd verða um atkvæði á eftir er nokkurn veginn sama upphæð og hæstv. ríkisstjórn ætlar að fá inn með því að skerða sjómannafrádrátt. Það er því alveg ljóst að þeir stuðningsmenn ríkisstjórnarliðsins sem hafa talið sig vera trega til að samþykkja kjaraskerðingu sjómanna hafa við þessa atkvæðagreiðslu tækifæri til þess að skila ríkissjóði nokkurn veginn sömu upphæðinni og ríkissjóður fær með því að skerða sjómannafrádráttinn.
Það er leitt að menn skuli ekki átta sig á því við þessa atkvæðagreiðslu að hér er hægt með fullboðlegum rökum með því að segja já við þessari till. að losa þingið og sjómannastéttina algerlega við þá skerðingu á sjómannafrádrætti sem greidd verða um atkvæði síðar í kvöld. Vegna þess að við teljum rétt að afla tekna með þessum hætti sem hér er gert frekar en að fara þær leiðir sem ríkisstjórnarmeirihlutinn vill fara, segi ég já.