Ólafur Ragnar Grímsson
:
Virðulegi forseti. Hér er það að gerast að ríkisstjórnarmeirihlutinn á Alþingi kýs að fara þá leið til að sækja sér 180 millj. að skerða réttindi sjómanna, fá á sig eins og fram hefur komið í dag, verkfallsboðun frá sjómannasamtökunum, mótmæli frá miklum fjölda starfandi sjómanna og stríð og óróleika á vinnumarkaði upp úr áramótum vegna upphæðar sem ríkisstjórnarmeirihlutinn hefði getað sótt sér hér fyrr í kvöld með því að samþykkja að framlengja jöfnunargjaldið um þrjá mánuði í viðbót.
Það er óskiljanlegt að ríkisstjórnarmeirihlutinn hér á Alþingi, sérstaklega fulltrúar samtaka sjómanna, menn sem gegna formennsku í verkalýðs- og sjómannafélögum, skuli frekar kjósa þá leið að sækja þessar 180 millj. með því að brjóta rétt á sjómannasamtökunum í landinu og starfandi sjómönnum í stað þess að samþykkja með stjórnarandstöðunni að framlengja jöfnunargjaldið um þrjá mánuði í viðbót. Þessi ákvörðun á eftir að reynast ríkisstjórninni, þingmeirihlutanum, mjög erfið. Hún á eftir að reynast ástandinu á vinnumarkaðinum mjög erfið og hún mun skapa átakatímabil hjá íslenskum sjómönnum þar til henni hefur verið hnekkt í kjarasamningum. Ég segi nei.