Guðmundur Bjarnason
:
Virðulegi forseti. Þessi töluliður sem nú eru greidd atkvæði um, svo og töluliðir 23, 24 og 25 hér á eftir í þessu þskj. sem er brtt. frá meiri hluta hv. fjárln., fjalla allir um skipulagsmál sjúkrahúsa hér í Reykjavík. Minni hluti fjárln. fjallaði ítarlega um málefni sjúkrahúsanna í Reykjavík í nál. sínu. Við sem að því nál. stöndum teljum að hér sé boðuð röng stefna af hálfu hæstv. heilbrrh. og muni sú stefna leiða til aukinna útgjalda strax á næsta ári og kosta mikla fjármuni þegar fram í sækir ef heldur fram sem horfir og boðað hefur verið.
Á næsta ári er í þessum tillögum gert ráð fyrir því að skera fjárveitingar til Landakotssjúkrahússins niður um tæpar 400 millj. sem gerir það sjúkrahús nánast óstarfhæft á næsta ári. Við fulltrúar minni hlutans eða stjórnarandstöðunnar munum því eftir atvikum sitja hjá eða greiða atkvæði gegn þessum brtt., þeim númerum sem ég greindi frá áðan.