Fjárlög 1992

59. fundur
Sunnudaginn 22. desember 1991, kl. 03:41:00 (2493)

     Halldór Ásgrímsson (um atkvæðagreiðslu) :
     Virðulegur forseti. Ég fagna því að í þessu tilviki hefur meiri hluti fjárln. komið brtt. sínum og niðurstöðum á framfæri með því að gera brtt. við fjárlög. Ég vænti þess að sá siður verði almennt viðhafður hér á Alþingi að niðurstöður fjárln. verði kynntar sem brtt. við fjárlög eins og í þessu tilviki en ekki geymdar í skúffum úti í fjárln.