Ólafur Ragnar Grímsson
:
Virðulegi forseti. Með þessari tillögu er verið að biðja um samþykki við tvennt:
Í fyrsta lagi verulegan niðurskurð í ríkisstofnunum án þess að fyrir liggi nokkrar lýsingar á því frá meiri hlutanum hér á Alþingi hvernig eigi að framkvæma þann niðurskurð. Hér er þess vegna rennt algjörlega blint í sjóinn í þessum efnum. Það er í algjörri mótsögn við það sem hæstv. fjmrh. sagði að væri markmið þessa fjárlagafrv., að það ætti að vera raunhæft og skýrt.
Í öðru lagi er verið að halda hér inn á þá hættulegu braut að fjárveitingavaldið samþykki að heimila einstökum ráðherrum sjálfdæmi um að ráðstafa hundruðum milljóna króna án nokkurs samráðs við fjárveitingavaldið.
Á undanförnum árum var að skapast breið samstaða um það hér á Alþingi að Alþingi, sem hefur fjárveitingavaldið samkvæmt stjórnarskrá, mundi hverfa frá því sem tíðkaðist áður fyrr að gefa ráðherrum sjálfdæmi með ýmsum hætti hvernig upphæðum væri ráðstafað.
Nú er það að gerast að ýmsir þeir, sem hvöttu til þess að fjárveitingavald Alþingis væri fest í sessi og styrkt, eru að beita sér fyrir því hér að taka upp þann nýja ósið að veita ráðherrum sjálfdæmi til ráðstöfunar í launa- og rekstrarkostnað með upphæðir sem skipta hundruðum milljóna hjá ýmsum ráðherrum. Það er mjög hættuleg braut og óljóst hvar það kann að enda. Ég mótmæli því eindregið að þessi ósiður í ríkisfjármálum sé tekinn hér upp og vonast til þess að það verði aldrei gert aftur. Við mótmælum einnig þeim flata niðurskurði á launa- og rekstrarkostnaði ríkisstofnana ótilgreindum sem hér er verið að biðja um heimild fyrir og ég segi því nei.