Ferill 6. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1991. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 6 . mál.
6. Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um herskipakomur í íslenskar hafnir og íslenska lögsögu.
Frá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur.
Hvaða herskip frá þeim ríkjum á norðurhveli sem eiga kjarnavopn, þ.e. Bandaríkjunum, Sovétríkjunum, Frakklandi og Bretlandi, hafa komið til íslenskra hafna eða siglt um íslenska lögsögu á sl. 30 árum og hvenær?
Greinargerð.
Þann 12. júlí sl. fór fyrirspyrjandi skriflega fram á það við utanríkisráðherra að hann léti í té tæmandi lista yfir herskipakomur í íslenskar hafnir á undanförnum 30 árum. Í svari frá utanríkisráðuneytinu, dags. 22. sama mánaðar, var óskað eftir frekari rökstuðningi við þessa beiðni áður en farið væri út í „jafnviðamikið verkefni“. Þann 26. júlí mótmælti fyrirspyrjandi svörum ráðuneytisins og ítrekaði enn beiðni sína, en til að auðvelda starfsmönnum utanríkisráðuneytisins vinnuna var fallist á að listinn tæki fyrst og fremst til þeirra ríkja á norðurhveli sem eiga kjarnavopn. Þrátt fyrir þetta hefur enn ekkert svar borist frá ráðuneytinu og því er þessi fyrirspurn nú lögð fram á Alþingi með formlegum hætti. Sú breyting hefur þó verið gerð á beiðninni að nú nær hún einnig til herskipa sem sigla um íslenska lögsögu enda lýsti Geir Hallgrímsson, þáverandi utanríkisráðherra, því yfir árið 1985 að bann við staðsetningu kjarnavopna á Íslandi næði bæði til íslenskra hafna og siglinga um íslenska lögsögu.
Skriflegt svar óskast.