Ferill 207. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 207 . mál.


242. Fyrirspurn



til samgönguráðherra um gjaldtöku Flugmálastjórnar.

Frá Sigbirni Gunnarssyni.



    Hvaða breytingar hafa orðið á eftirtöldum gjöldum Flugmálastjórnar, sem innheimt eru af flugrekendum, á árunum 1987–1991:
    lendingargjöldum,
    aukaopnun á flugvöllum,
    skoðunar- og eftirlitsgjöldum loftfara,
    skoðunar- og eftirlitsgjöldum vegna nýskráningar loftfara,
    endurnýjun lofthæfisskírteina loftfara,
    útgáfu lofthæfisskírteina loftfara?
    Óskað er eftir að tölur verði færðar til núvirðis.


Skriflegt svar óskast.