Ferill 313. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 313 . mál.


518. Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um framleiðslu og nýtingu raforku.

Frá Guðmundi Stefánssyni.



    Hve mikil var framleiðslugeta raforkuvera hér á landi í árslok 1991, skipt eftir raforkuverum?
    Hve mikil er áætluð raforkunotkun hér á landi 1992, skipt í heimilisnotkun og notkun í atvinnuskyni?
    Hvert er söluverð Landsvirkjunar til einstakra rafveitna miðað við orkueiningu?
    Hvað líður áformum ríkisstjórnarinnar um jöfnun raforkukostnaðar og hve langt er gert ráð fyrir að slík jöfnun nái?


Skriflegt svar óskast.