Ferill 328. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 328 . mál.


594. Svar



iðnaðarráðherra við fyrirspurn Árna M. Mathiesen um auglýsinga- og kynningarkostnað iðnaðarráðuneytisins.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hver var auglýsinga- og kynningarkostnaður iðnaðarráðuneytis á árinu 1990 annars vegar og fyrstu fjóra mánuði ársins 1991 hins vegar?
    Hvaða aðilar fengu greiðslur vegna þessa kostnaðarliðar?
    Hversu háar voru greiðslurnar og hvenær voru þær greiddar?
    Fyrir hvað var greitt?
    Voru einhverjar reglur í gildi í ráðuneytinu varðandi þessi atriði?


    Í fyrirspurninni er spurt um hvort einhverjar reglur séu í gildi í ráðuneytunum varðandi þessi atriði. Ekki er um formlegar reglur að ræða, en brýnt er fyrir starfsmönnum að gæta fyllsta sparnaðar í þessu efni. Varðandi stærstu fjárhæðina í yfirliti iðnaðarráðuneytisins er rétt að taka fram að þar var um lið í sérstöku landkynningarátaki að ræða sem ráðuneytið greiddi að hálfu á móti Landsvirkjun.


repró.