Ferill 381. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 381 . mál.


619. Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um kostnað við fundaherferð og kynningu á vegum heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins.

Frá Kristni H. Gunnarssyni.



    Hver er heildarkostnaður við fundi og kynningar heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra innan lands frá 1. janúar til 23. mars 1992? Auk heildarkostnaðar er óskað eftirfarandi sundurliðunar:
    Heildarkostnaður við auglýsingar í dagblöðum.
    Heildarkostnaður við auglýsingar í útvarpi og sjónvarpi.
    Heildarkostnaður við aðrar auglýsingar.
    Heildarkostnaður við leigu á fundarsölum og annar beinn kostnaður við fundahald.
    Heildarferðakostnaður heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, aðstoðarmanns hans og embættismanna.
    Annar kostnaður.


Skriflegt svar óskast.