Ferill 346. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 346 . mál.


654. Svar



heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra við fyrirspurn Hrafnkels A. Jónssonar um ferða- og uppihaldskostnað landsbyggðarfólks vegna glasafrjóvgunar.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Mun ráðherra beita sér fyrir því að Tryggingastofnun ríkisins greiði að hluta eða öllu leyti ferða- og uppihaldskostnað þeirra sem leita til sérfræðings í Reykjavík vegna glasafrjóvgunar eftir sömu reglum og gilda um endurgreiðslu ferðakostnaðar vegna sjúkdóma?

    Allar greiðslur vegna ferðakostnaðar hjá Tryggingastofnun ríkisins verða að vera óbreyttar á þessu ári þar sem ekki er gert ráð fyrir því í áætlunum sjúkratryggingadeildar að kostnaðaraukning verði vegna ferða.
    Miðað við ákvarðanir ríkisstjórnarinnar um gerð fjárlagafrumvarps fyrir árið 1993 er ekki hægt að gera ráð fyrir breytingu að þessu leyti á næsta ári.