Ferill 474. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 474 . mál.


732. Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um Verðlagsstofnun.

Frá Bryndísi Friðgeirsdóttur.



    Hve mörg störf er ætlunin að leggja niður hjá Verðlagsstofnun á þessu ári og hvenær?
    Hvernig skiptust stöðugildi Verðlagsstofnunar milli höfuðborgarsvæðisins annars vegar og landsbyggðarinnar hins vegar á síðasta ári og hvernig munu stöðugildin skiptast á þessu ári?
    Hvaða stöðugildi verða lögð niður?
    Hvernig er áformað að herða samkeppniseftirlit á þessu ári?


Skriflegt svar óskast.