Ferill 494. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1991–92. – 1061 ár frá stofnun Alþingis.
115. löggjafarþing. – 494 . mál.


780. Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um Landsvirkjun.

Frá Einari K. Guðfinnssyni.



    Hverjar hafa árlegar heildarskuldir Landsvirkjunar verið frá árinu 1982, reiknaðar á núgildandi verðlagi?
    Hve mikil hefur heildarorkusalan verið á ári hverju, annars vegar mælt í gígavattstundum og hins vegar í krónutölu á núgildandi verðlagi?
    Hverjar hafa heildarskuldir á hverja selda gígavattstund verið á þessu tímabili?
    Hve mikil hefur árleg heildarfjárfesting fyrirtækisins verið á framangreindu tímabili á núgildandi verðlagi?


Skriflegt svar óskast.