Varamaður tekur þingsæti

93. fundur
Þriðjudaginn 05. janúar 1993, kl. 10:30:10 (4270)

     Forseti (Sturla Böðvarsson) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf:
    ,,Þar sem fjmrh., Friðrik Sophusson, 2. þm. Sjálfstfl. í Reykjavíkurkjördæmi, er erlendis og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með vísan til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjavíkurkjördæmi, Þuríður Pálsdóttir yfirkennari, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.``
    Undir þetta ritar Geir H. Haarde, formaður þingflokks Sjálfstfl.
    Þuríður Pálsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hún boðin velkomin til starfa.