Kristín Einarsdóttir
(andsvar)
:
Virðulegur forseti. Ég taldi mig nú svara þessu áðan. Ég sagði að ég væri andsnúin þessu valdaframsali. Ég sagði það mjög skýrt, að ég væri andsnúin því og ég sagði það líka áðan, ég las upp það sem Gunnar G. Schram sagði. Hann lýsti því hvað þetta væri mikið valdaframsal. Hann taldi að þetta stæðist stjórnarskrána. Ég er ósammála þessu valdaframsali og þó að þetta hafi staðist stjórnarskrá, þó að stjórnlagafrv. sem að við fluttum hefði hlotið samþykki þá hefði ég greitt atkvæði gegn samningnum. En ég tel að í öllu alþjóðasamstarfi sé fólgið ákveðið valdaframsal og að mati flestra sérfræðinga er ekki hægt að samþykkja EES-samninginn eins og hann er núna, að óbreyttri stjórnarskrá, en með því að breyta henni í þá veru sem við lögðum til væri hægt að gera það. Og ég sagði það hér. En það breytir ekki því að ég er ósammála því valdaframsali. Ég er ósammála því valdaframsali. Endurtek. Og ég sagði það líka í ræðu minni áðan. Ég tel ekki að það eigi að gera það. En þó að ég sé á móti því þá vil ég ekki að nokkurt lagafrumvarp stríði gegn stjórnarskránni. Þannig að ég vil standa að því að leggja fram frv. á Alþingi --- ef að það er ljóst að meiri hluti Alþingis ætlar sér að samþykkja eitthvert lagafrumvarp, þá vil ég að það standist stjórnarskrána --- um breytingu á henni eins og þarna var lagt til til þess að það verði hægt. Auk þess hefur komið fram hjá sérfræðingum að ef hægt á að vera að lögfesta t.d. Mannréttindasáttmála Evrópu hér á landi, þá þurfum við að breyta stjórnarskránni. Það er skoðun margra. Ég tel það mjög mikilvægt að breyta stjórnarskránni í þá veru að mannréttindaþáttur hennar verði betri og skýrari.