Evrópskt efnahagssvæði

94. fundur
Miðvikudaginn 06. janúar 1993, kl. 17:03:27 (4388)

     Árni M. Mathiesen :
    Virðulegi forseti. Ég tel að þessi samningur muni í framtíðinni veita okkur Íslendingum mikla möguleika til að bæta okkar kjör. Ég tel að aðild að Evrópska efnahagssvæðinu veiti okkur sóknarfæri til þess að bæta kjör okkar á tímum þegar okkur veitir einna helst af. Ég er sannfærður um það að þessi samningur brýtur á engan hátt gegn stjórnarskrá lýðveldisins. Því segi ég já.