Frsm. meiri hluta utanrmn. (Björn Bjarnason)
(andsvar)
:
Frú forseti. Greinargerð sú sem hv. þm. telur alveg rétt mál er náttúrlega kannski rétt frá hans pólitíska sjónarhorni er ekki lögfræðileg greinargerð. Greinargerðin snýst ekki um lögfræði. Þegar fjallað er um mál eins og það sem á var drepið og hv. þm. las upp varðandi spurningu um orðið kvísl og það notað til þess að rökstyðja það að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið og það frv. sem hér er til umræðu standist ekki og sé ekki unnt að lögfesta hér á landi er það ekki lögfræði. Það er pólitík og það eru pólitískar vangaveltur sem hv. þm. getur talið falla að sínum skoðunum og vera hárréttar á þeim forsendum.
En hann svaraði ekki spurningu minni sem var um það hvort hann hefði stutt frv. sem snerti skipið Het Wapen van Amsterdam og hvort hann hefði talið að það væri eðlilegt að samþykkja á Alþingi frv. um þingmál sem enginn vissi í raun og veru um hvað snýst og aldrei fannst svo, hvað honum finnst um það fordæmi. Einnig vil ég benda þingmanninum á það að álit meiri hluta allshn. liggur fyrir á borðum okkar varðandi frv. til laga um kaup á þyrlu sem úrskurðað hefur verið algerlega í andstöðu við þær starfsaðferðir sem menn eiga að beita á Alþingi við meðferð lagafrv. eins og fram mun koma í greinargerð frá minni hluta allshn. um það mál. Þar með get ég því nefnt þingmanninum tvö dæmi um frv. til laga á Alþingi sem snúast um mál sem algerlega er ástæðulaust að bera upp á Alþingi og snerta frekar það umdeilda mál sem hann vill vekja hér máls á með því að vísa í prófessor Björn Þ. Guðmundsson.