Evrópskt efnahagssvæði

97. fundur
Föstudaginn 08. janúar 1993, kl. 15:09:33 (4473)

     Steingrímur J. Sigfússon (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Við höfum heyrt þann krata og e.t.v. þann mann íslenskan tala sem lengst hefur gengið í Evrópudýrkun allra sem hér hafa flutt mál sitt. Þessi maður á sér hugsjón og trúarbrögð og þau eru að renna inn í hið nýja stórríki Evrópu og áhyggjur annarra hv. þm. af sjálfstæði og fullveldi þjóðarinnar við þær aðstæður kallar hann ættjarðarskrum.
    Ég ætla að þakka hv. þm. Evrópubandalagsins, Karli Steinari Guðnasyni, fyrir eitt og það er að koma til dyranna eins og hann er klæddur.