Evrópskt efnahagssvæði

97. fundur
Föstudaginn 08. janúar 1993, kl. 18:00:09 (4509)

     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hv. þm. þarf ekkert að vera hissa á umhyggju minni fyrir Framsfl. Mér hefur lengi þótt mjög vænt um Framsfl. og ég var þar í hálft ár þegar ég var 15 ára gamall og Alþb. hefur átt mjög gott samstarf við Framsfl. Mér er engin launung á því að mér finnst að þau tíðindi sem hafa birst í atkvæðagreiðslum í þessu máli veki upp spurningar. Það er vafalaust rétt hjá hv. þm. að margir eru hér í þessu máli, eins og öllum, að reyna að fiska í gruggugu vatni. En ég leyni því ekkert og ég vona að þingmaðurinn átti sig á því að ég mæli það í fullri einlægni að mér þykir þetta mjög athyglisverð, að ég segi ekki meira, niðurstaða sem við stöndum frammi fyrir að því er varðar Framsfl.