Evrópskt efnahagssvæði

97. fundur
Föstudaginn 08. janúar 1993, kl. 18:04:41 (4512)

     Frsm. 2. minni hluta utanrmn. (Ingibjörg Sólrún Gísladóttir) (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ef menn vildu kanna þetta og sáu þarna hugsanlega jákvæða niðurstöðu þegar þeir voru í ríkisstjórn, þá hljóta þeir jafnframt að viðurkenna að þetta er ekki alvont. Þarna er eitthvað til staðar sem hugsanlega er hægt að nýta sér.
    Ég get alveg tekið það gilt að menn séu bara hreint og klárt þjóðernissinnar. Það er gild afstaða og ég get alveg virt hana innan vissra marka þó. Hún er þá bara klár. Svo geta menn líka verið þeirrar skoðunar að það þurfi höft á efnahagslífið og það er þá líka alveg klár afstaða og hugmyndaleg og þess valdandi að menn gera ekki svona samninga. En menn geta ekki farið af stað í svona samningaferli og jafnvel haft fyrir augum að þeir vilji gjarnan gerast aðilar að innri markaði og fjórfrelsi og komið síðan og útmálað þetta eins og skrattann á vegginn. Það gengur bara ekki, virðulegur þingmaður.