Össur Skarphéðinsson
(um þingsköp)
:
Virðulegur forseti. Við erum komin saman til þingfunda á þessum óvenjulega tíma árs vegna þess að við þurfum að ljúka ákveðnum verkum. Þegar formenn þingflokka hófu sína samráðsfundi í upphafi þessarar viku þá lá það fyrir að menn vildu gjarnan stefna að því að ljúka tilteknum hluta þessara verka, þ.e. umræðunni um EES, í þessari viku. Það lá alveg fyrir af hálfu beggja stjórnarflokkanna frá fyrsta samráðsfundi að við lögðum á það mikla áherslu að það væri hægt að ljúka henni í þessari viku og við lögðum þegar á fyrsta fundi áherslu á það að ef með þyrfti þá yrði hér þingfundur á laugardaginn. Þetta var rætt frekar á fundum í gegnum vikuna og það er alveg rétt sem hér kemur fram að formenn þingflokka stjórnarandstöðunnar höfðu við því sterka fyrirvara. En það er líka rétt að það komi fram að forseti tók ævinlega fram að hún útilokaði ekki að þingfundur yrði á laugardag og það er jú forsetinn sem hefur úrslitavaldið í þessum efnum.
Það liggur líka fyrir að utanrrh. er á leið utan í mikilvægum erindagjörðum. Það kom fram gagnvart stjórnarandstöðunni þegar nokkru fyrir jól að hann yrði að halda úr landi um þessa helgi. Það hefur líka komið fram eðlileg krafa af hálfu stjórnarandstöðunnar að hann verði viðstaddur þessa umræðu. Þess vegna er það fullkomlega eðlilegt til að koma þessu við að geta lokið umræðum og jafnframt að utanrrh. geti verið viðstaddur hana að við grípum til þess að hafa fund hér á morgun. Ég tel það fullkomlega eðlilegt.