Evrópskt efnahagssvæði

98. fundur
Laugardaginn 09. janúar 1993, kl. 18:49:33 (4590)


     Guðrún Helgadóttir (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Þetta var athyglisvert eins og ævinlega þegar hv. 16. þm. Reykv. tekur til máls. Má ég biðja hann að svara mér hvort ég skildi hann rétt. Verða þægindafánar aflagðir þegar Evrópska efnahagssvæðið verður að veruleika, munu þá Norðmenn, Íslendingar og aðrir slíkir hætta að sigla undir þægindafánum? Þingmaðurinn þarf ekki annað en segja bara já eða nei.