Össur Skarphéðinsson
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Ég vil benda á það að hér eru staddir í húsinu hvorki meira né minna en 41 þingmaður. Ég hefði nú talið að það væri nægilegur fjöldi til þess að við gætum haldið áfram þessari umræðu. Það er vitaskuld bagalegt að hv. þm. Jóhann Ársælsson, sem er í sjútvn. þingsins, er ekki mættur hérna en ég bendi á það að við héldum umræðu um þetta mál áfram á fimmtudag um tveggja og hálfs tíma skeið þrátt fyrir að nokkrir sjávarútvegsnefndarmenn hefðu ekki getað verið við þá umræðu. Það var á það fallist vegna þess að menn voru að freista þess að greiða fyrir þingstörfum og það er svo að við viljum öll ljúka þessum málum sem hér liggja fyrir þannig að ég vil mælast til þess að þingflokkur Alþb. heimili þessa umræðu og ég vek athygli á því að annar talsmanna flokksins í sjútvn. er einmitt staddur hér og er á mælendaskrá.