Sigríður A. Þórðardóttir
:
Hæstv. forseti. Frá því að Íslendingar urðu sjálfstæð þjóð höfum við með dugnaði og árvekni skapað okkur þann stað í veröldinni að þessi fámenna eyþjóð nýtur virðingar í samfélagi þjóðanna. Samskipti okkar við aðra íbúa jarðar hafa byggst á gagnkvæmu trausti. Í smækkandi heimi, heimi greiðra samgangna og viðskipta er ríkari nauðsyn en nokkru sinni fyrr á gagnkvæmu trausti þjóða á milli. Einangrunarstefna á þar engan rétt og er aðeins til þess fallin að rýra hag þeirra sem hana kjósa. Góð reynsla af samstarfi við aðrar þjóðir og sömuleiðis góð kynni sýna okkur að í þessum efnum er ekkert að óttast.
Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið er byggður á gagnkvæmu trausti og til þess gerður að hann verði íbúum þeirra landa sem að honum standa til ávinnings. Þess vegna segi ég já.