Grunnskóli

102. fundur
Fimmtudaginn 14. janúar 1993, kl. 16:42:10 (4857)

     Valgerður Sverrisdóttir (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég mismælti mig þegar ég fór að tala um skiptistundir. Það voru þessir fjórir ráðstöfunartímar sem hæstv. ráðherra var að meina og vissi ekki að væru notaðir að hluta til í íslenskukennslu en hefur fengið vitneskju um núna. Þess vegna vil ég bara ítreka það sem ég sagði áðan að það er ekki orðið of seint að draga þetta frv. til baka þar sem hæstv. ráðherra hefur fengið þessar upplýsingar.